Jarðskjáftabylgjur er titringurinn sem myndast frá upphafspunkti jarðskjálftans. Til eru tvenns konar bylgjur, P-bylgjur (primary) og S-bylgjur (secondary). P-bylgjur dreyfast út frá upprunastaðnum eins og bylgjuhreyfing sem er samsíða farstefnunni, þannig að þjöppun og tognun skiptast á. S-bylgjurnar sveiflast þvert á farstefnuna, til vinstri og hægri og upp og niður. Bara P-bylgjur geta farið í gegnum vökva eins og kviku. |